Fjárlög 2021: Gert ráð fyrir verulegri hækkun framlaga til kvikmyndagerðar

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2021 hefur verið lagt fram á Alþingi og í fylgiriti með frumvarpinu má sjá hvaða tillaga er gerð til fjárveitinga til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á árinu 2021.

Samkvæmt frumvarpinu munu fjárheimildir til reksturs Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á árinu 2021 nema 206,5 milljónum króna. Fjárheimildir skv. fjárlögum á árinu 2020 námu 109,9 m.kr. svo þarna er um að ræða 88% hækkun gangi þetta eftir.

Fjárheimildir til úr Kvikmyndasjóðs, sem veitir styrki til kvikmyndagerðar, nema 1.499,6 milljónum króna samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár en voru 1.109,8 m.kr. á fjárlögum ársins 2020. Mun því hækka um 390 m.kr. milli ára eða 35%.

Breytingar í fjárheimildum milli ára endurspegla innleiðingu nýrrar kvikmyndastefnu sem unnið hefur verið að á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins undanfarin misseri. Hún mun verða lögð fram á næstunni, sjá nánar frétt á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Sjá nánar hér: Tillaga um að fjárheimildir til KMÍ hækki á árinu 2021

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR