Myndirnar á Nordisk Panorama í fríu streymi

Stutt- og heimildamyndahátíðin Nordisk Panorama hefst í dag og fer fram að mestu leiti í stafrænu formi frá 17.-27. september. Hægt er að horfa frítt á allar myndir hátíðarinnar í streymi (ef þú ert á Norðurlöndum).

Hátíðin er helsta hátíð sinnar tegundar á Norðurlöndum og sýnir eingöngu myndir eftir norræna kvikmyndagerðarmenn.

Norðurlöndunum býðst tækifæri til að skrá sig frítt í streymikerfi hátíðarinnar þar sem fjöldi heimilda- og stuttmynda er í boði fyrir almenning.

Fimm íslenskar myndir munu keppa til verðlauna á hátíðinni og eru það eftirfarandi myndir:

Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson og Síðasta haustið eftir Yrsu Roca Fannberg keppa um „Best Nordic Documentary“ verðlaunin og eru alls 14 norrænar heimildamyndir sem keppa um titilinn og 11.000€ verðlaunafé.

Stuttmyndin Lokavals eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur valin til þátttöku á Nordic Shorts“ og er hún á meðal 22 norrænna stuttmynda sem keppa um 6.000€ verðlaunafé. Auk þess er sigurmyndin gjaldgeng í tilnefningu á stuttmyndahluta Óskarsverðlaunahátíðarinnar.

Heimildamyndin Hálfur Álfur eftir Jón Bjarka Magnússon var valin til keppni um björtustu vonina (Best New Nordic Voice). Hálfur Álfur er á meðal 18 stuttmynda sem keppa um 5.000€ verðlaunafé.

Þá tekur stuttmyndin Já-fólkið þátt í Young Nordics hluta hátíðarinnar, þar sem yngstu áhorfendurnir sjá um að velja eina af þrettán myndum sem vinningsmynd flokksins.

Hér má nálgast streymisveitu Nordisk Panorama hátíðarinnar ásamt nánari upplýsingum. Athugið að margar myndanna eru aðeins fáanlegar á tilteknum tíma. Aðrar eru fáanlegar yfir nokkurra daga tímabil. Þá eru nokkrar myndanna ekki fáanlegar á Íslandi.

Sjá nánar hér: Norðurlöndum býðst tækifæri til að horfa á norrænar heimilda- og stuttmyndir á Nordisk Panorama streymisveitunni

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR