Eftir sjöundu sýningarhelgi er Amma Hófí enn á toppnum með yfir 20 þúsund gesti.
615 sáu Ömmu Hófí í liðinni viku, sem er allnokkur samdráttur í aðsókn frá fyrri viku, en alls hefur myndin fengið 20,009 gest eftir sjöundu sýningarhelgi.
387 sáu Síðustu veiðiferðina í vikunni. Eftir 25. sýningarhelgi (þar af nítján helgar í sýningum) nemur heildarfjöldi gesta 34,703 manns.
ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.
Aðsókn á íslenskar myndir 17.-23. ágúst 2020
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
7 | Amma Hófí | 615 | 20,009 (19,393) |
25 | Síðasta veiðiferðin | 387 | 34,703 (34,316) |