Bergmál Rúnars Rúnarssonar er í 32 mynda forvali til Evrópsku kvikmyndaverðaunanna. Þetta var tilkynnt í dag. Önnur mynd sem Íslendingar koma að, Between Heaven and Earth, er einnig í forvalinu.
Rúnar, Lilja Ósk Snorradóttir og Live Hide framleiða Bergmál. Eggert Ketilsson, Elísabet Ronaldsdóttir og Fahad Falur Jabali framleiða Between Heaven and Earth ásamt fleirum.
Nánar má fræðast um forvalið hér
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða afhent í Reykjavík 12. desember næstkomandi.