Evrópsku kvikmyndaverðlaununum í Reykjavík frestað um tvö ár​

Verðlaunahátíð Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fer fram í Reykjavík 2022 en ekki í desember í ár eins og til stóð, vegna versnandi ástands heimsfaraldursins COVID-19 í Evrópu.

Þetta kemur fram á vef Kvikmyndamiðstöðvar og þar segir einnig:

Um er að ræða viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar við Evrópsku kvikmyndaakademíuna (EFA) í Berlín en að því koma meðal annars Harpa og RÚV. Stafrænni athöfn verður streymt og sjónvarpað beint frá Berlín 12. desember 2020. Sjá tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra: „Við munum halda glæsilega og fjölbreytta hátíðardagskrá til heiðurs evrópskum kvikmyndum, hún verður bara ekki í ár – enda eru nú óvenjulegir tímar sem kalla á sveigjanleika. Þetta er geysilega spennandi tækifæri fyrir íslenska kvikmyndamenningu og kvikmyndageirann hér á landi og við munum nýta það vel.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri: „Við vorum farin að hlakka til að taka á móti erlendum gestum okkar í ár og sýna þeim allt það sem við höfum fram á að færa. En þetta er besti kosturinn í stöðunni í ljósi heimsfaraldursins. Það er ánægjulegt að samkomulag hafi náðst um að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verði haldin í Reykjavík að tveimur árum liðnum. Þá getum við einbeitt okkur alfarið að því að undirbúa glæsilega hátíð og hliðarviðburði sem við getum nýtt í markaðssetningu á menningarborginni Reykjavík en ekki síður í þágu íslenskrar kvikmyndagerðar og skapandi greina almennt.“

Mike Downey formaður EFA: „Þessi ákvörðun var þungbær en hún var tekin af ábyrgð og umhyggju fyrir gestum okkar. Við hjá EFA ásamt vinum okkar á Íslandi erum vonsvikin yfir því að ná ekki hittast í Reykjavík á þessu ári. Mikilli sköpunargáfu, ástríðu og orku hefur verið varið úr öllum áttum við skipulagningu verðlaunakvöldsins og kröftugt teymi unnið að því hörðum höndum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að öllu þessu er hægt að viðhalda og samstarf okkar mun halda áfram með það að markmiði að halda enn skemmtilegri hátíð til heiðurs evrópskrar kvikmyndagerðar á Íslandi í desember árið 2022, þegar heimurinn verður vonandi búinn að sigrast á COVID-19. Við gleðjumst einnig yfir því að EFA-skógurinn í Heiðmörk, sem við gróðursettum í júlí ásamt Skógræktarfélagi Reykjavíkur og vinum okkar úr íslenska kvikmyndasamfélaginu, heldur áfram að vaxa. Trén 3.750 munu nú dafna í enn hreinna lofti og bíða endurkomu okkar eftir tvö ár.”

Evrópska kvikmyndaakademían vinnur nú nánar að útfærslu rafrænnar evrópskrar kvikmyndahátíðarviku í Berlín í ár samhliða verðlaunaafhendingarkvöldinu en rúmlega 3.800 meðlimir Evrópsku kvikmyndaakademíunnar munu áður greiða atkvæði um verðlaunin eins og endranær. Vegna heimsfaraldursins verða tilnefningarnar kynntar rafrænt þriðjudaginn 10. nóvember nk. í streymi.

Tvær kvikmyndir þar sem Íslending­ar koma að framleiðslunni á eru meðal þeirra 32 kvikmynda sem eru í fyrra forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár. Kvikmynd Rúnars Rúnars­sonar, Bergmál og Between Heaven and Earth eftir Najwa Najjar þar sem Tómas Örn Tómasson stjórnaði kvikmyndatöku ásamt því að Eggert Ketilsson, Elísabet Rónaldsdóttir og Fahad Falur Jabali eru á meðal framleiðenda.

Nánari upplýsingar um Evrópsku kvikmyndaverðlaunin má finna á heimasíðu EFA.

Sjá nánar hér: Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í Hörpu árið 2022​

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR