Icedocs í annað sinn 15.-19. júlí

Bíóhöllin Akranesi.

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin Icedocs (Iceland Documentary Festival) fer fram í annað sinn á Akranesi dagana 15.-19. júlí. Þar verða sýndar heimildamyndir frá öllum heimshornum samhliða viðburðadagskrá með spurningakeppni, jóga og tónleikum í Akranesvita.

Frítt er á flestar sýningarnar í Bíóhöllinni á Akranesi en hægt er að kaupa passa sem veitir frekari aðgang að lokuðum viðburðum og dagskrá á netinu. Meira en tuttugu myndir verða sýndar á hátíðinni og þar má meðal annars nefna Banksy: Most Wanted, portrett um huldulistamanninn fræga, Marshawn Lynch: A History um NFL-stjörnuna sem kaus að þegja til að mótmæla kynþáttamisrétti og Forman vs. Forman sem fjallar um lygilegan feril tékkneska kvikmyndaleikstjórans Milos Forman.

Einnig verður sérstök dagskrá tileinkuð íslenskum brautryðjendum á fimmtudeginum en þá verður sýnd myndin Björgunarafrekið við Látrabjarg eftir Óskar Gíslason, en hann var ljósmyndari og frumkvöðull í íslenskri kvikmyndagerð. Kvikmyndasafn Íslands hefur unnið að endurgerð myndarinnar. Hún fjallar um björgunaraðgerðir bænda þegar togarinn Dhoon strandaði undir Geldingsskorardal í miklu óveðri þann 12. desember 1947, en myndin kom út 1949.

Sjá viðburðadagatal hátíðarinnar hér.

Sjá nánar hér: Alþjóðleg kvikmyndahátíð á Akranesi í annað sinn

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR