Síðasta veiðiferðin er áfram í fyrsta sæti aðsóknarlistans og eykst aðsóknin um nær 40% milli vikna.
1,823 gestir sáu myndina í vikunni miðað við 1,328 gestir vikuna áður. Nemur heildarfjöldi gesta nú 16,116 manns.
ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.
Aðsókn á íslenskar myndir 11.-17. maí 2020
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
11 | Síðasta veiðiferðin | 1823 | 16,116 (14,293) |