Tökur hefjast á sænsk/íslensku þáttaröðinni „20/20″Tökur hefjast í næstu viku á þáttaröðinni 20/20 sem framleidd er af Sagafilm og sænska framleiðslufyrirtækinu Yellow Bird. Gerðir verða tíu þættir og standa tökur fram á vor hér á landi. Jóhann Ævar Grímsson, Birkir Blær Ingólfsson og Jónas Margeir Ingólfsson skrifa handrit þáttanna sem er lýst sem einskonar „eco-þriller“.
Leikstjórar eru þrír, þar af einn íslenskur Guðjón Jónsson, sem hingað til hefur aðallega fengist við gerð auglýsingamynda.
Meira síðar.