Víti í Vestmannaeyjum eftir Braga Þór Hinriksson vann til verðlauna á Ale Kino barnakvikmyndahátíðinni í Poznan síðastliðinn laugardag.
Hátíðin er með sérstakan fótboltamyndaflokk og vann kvikmyndin í þeim flokki. Verðlaunin bera heitið The Football Goats, en Gullnu geiturnar eru bæði merki borgarinnar Poznan og merki verðlaunanna á hátíðinni.
Víti í Vestmannaeyjum hefur nú unnið til fjögurra alþjóðlegra verðlauna.
Sjá nánar hér: Víti í Vestmannaeyjum vinnur til verðlauna á Ale Kino barnakvikmyndahátíðinni