Kvikmyndamiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf framleiðslustjóra á vef sínum.
Þar segir að um sé að ræða áhugavert og krefjandi starf með það að markmiði að efla kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu á Íslandi. Framleiðslustjóri annast umsýslu og afgreiðslu styrkumsókna sem berast stofnuninni vegna kvikmyndagerðar.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember.
Capacent tekur á móti umsóknum og má finna nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur má finna á vef Capacent.