KMÍ fundar með kvikmyndagerðarfólki

Kvikmyndamiðstöð Íslands í samvinnu við Bíó Paradís býður kvikmyndagerðarfólki til fundar 7. nóvember frá kl. 16-18.

Á fundinum verður fjallað um stöðu Kvikmyndasjóðs og helstu verkefna í ljósi samkomulags og hvernig hefur miðað frá undirritun fyrir réttu ári síðan.

Samkomulagið má finna á heimasíðu KMÍ.

Eftir kynningu mun Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Bíó Paradísar, stýra umræðum.

Boðið verður upp á kaffi á fundinum auk þess sem gleðistund er á barnum að fundi loknum.

Sjá nánar hér: Fundur KMÍ með kvikmyndagerðarfólki í samvinnu við Bíó Paradís

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR