Þáttaröðin Stella Blómkvist kemur í Sjónvarp Símans í nóvember næstkomandi. Stikla þáttanna, sem eru sex talsins og verða allir fáanlegir í einu, er komin út.
Heiða Rún Sigurðardóttir (Heidi Reed) fer með titilhlutverkið, andhetjuna, tálkvendið og lögfræðinginn Stellu Blómkvist sem fetar sínar eigin slóðir – helst yfir tærnar á valdamiklu fólki sem hefur eitthvað að fela.
Óskar Þór Axelsson leikstýrir en handritshöfundar eru Jóhann Ævar Grímsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Andri Óttarsson. Sagafilm framleiðir.