Heimildamyndin Jökullinn logar eftir Sævar Guðmundsson og Sölva Tryggvason hlaut í gær Golden Whistle-verðlaunin sem veitt eru árlega á Kicking & Screening Soccer Film Festival í New York. Myndin var sýnd á opnunarkvöldi hátíðarinnar en á ensku ber hún titilinn Inside a Volcano.
Myndin fjallar um uppgang knattspyrnuiðkunar á Íslandi og vegferð íslenska karlalandsliðsins á leiðinni á EM-mótið í fyrra.
Sjá nánar hér: Jökullinn logar vinnur til verðlauna – mbl.is