Stikla kvikmyndarinnar Edie hefur verið opinberuð og má skoða hér. Ágúst Jakobsson er tökumaður myndarinnar sem verður frumsýnd á Edinborgarhátíðinni síðar í mánuðinum. Simon Hunter leikstýrir og með aðalhlutverkið fer hin kunna breska leikkona Sheila Hancock.
Edie fjallar um samnefnda skapstygga konu á níræðisaldri. Eftir andlát eiginmannsins vill dóttirin koma henni fyrir á elliheimili en Edie er því mótfallin. Í staðinn fer hún til skosku hálandanna og leggst í fjallaklifur, í félagsskap ungs heimamanns.