Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, fer fram 2.-5. júní næstkomandi á Patreksfirði. Tilkynnt hefur verið um þær myndir sem taka þátt í hátíðinni, en hún er nú haldin í tólfta sinn.
Dómnefndarverðlaunum bætt við
Áhorfendaverðlaun („Einarinn“) hafa hingað til verið einu verðlaun hátíðarinnar, en að þessu sinni verður dómefndarverðlaunum bætt við. Í dómnefnd sitja leikstjórarnir Ísold Uggadóttir, sem nú leggur lokahönd á fyrstu bíómynd sína Andið eðlilega – og Halla Kristín Einarsdóttir sem hlaut verðlaun hátíðarinnar 2015 fyrir Hvað er svona merkilegt við það?, ásamt ástralska framleiðandanum Krishnan Aora, sem starfar á SBS sjónvarpsstöðinni í Ástralíu. Aora vann um árabil við dagskrárgerð og framleiðslu heimildamynda hjá BBC og síðar Arte og hefur framleitt fjölda verðlaunaðra heimildamynda.
Heiðursgestir
Heiðursgestir Skjaldborgarhátíðarinnar í ár eru listamennirnir Steina og Woody Vasulka, heimsþekktir frumkvöðlar í videolist í heiminum. Þau hittust í Prag á sjöunda áratugnum en þá var Woody kvikmyndagerðarmaður og Steina fiðluleikari. Þau giftust og fluttu saman til New York þar sem þau hófu myndrænar tilraunir með hina nýfæddu videolist og ráku um árabil hið fræga listamannarými The Kitchen sem enn starfar í dag. Síðar fluttu þau til Santa Fe og vinna þar áfram að tilraunum sínum.
Auk sýninga á myndum eftir þau í Skjaldborgarbíó og masterclass í kjölfarið verða fleiri verk þeirra sýnd í nýju listamannarými á Patreksfirði sem tilheyrir húsinu Merkisteini – rýmið nefnist einfaldlega Húsið og er í eigu Arons Inga Guðmundssonar og Julie Gasiglia. Aron er þriðji maðurinn í stjórn Skjaldborgar og Julie gerir grafíkina í ár. Verkin sem sýnd verða í Húsinu verða í samvinnu við Listasafn Íslands, sýningastjóri er Kristín Scheving.
Myndirnar
Nýjir stjórnendur hátíðarinnar, Kristín Andrea Þórðardóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir, hafa opinberað myndavalið, en alls verða sýndar 20 nýjar myndir auk 10 verka í vinnslu.
Myndirnar eru:
Titill |
Leikstjóri |
Goðsögnin FC Kareoke | Herbert Sveinbjörnsson |
Þar sem þú hefur alltaf verið | Atli Sigurjónsson |
Sveinn á Múla, Íslendingurinn sem varð bensínlaus | Marine Ottogalli |
Blóð, sviti og derby | Inga Óskarsdóttir |
Blindrahundur | Kristján Loðmfjörð |
Stökktu | Anna Sæunn Ólafsdóttir |
Skjól og skart- handverk og saga íslensku búninganna | Ásdís Thoroddsen |
Borða, vaxa, elska | Thordur Jonsson & Heather Millard |
Í kjölfar feðranna | Ingvar Ágúst Þórisson/Margrét Jónasdóttir |
Ormurinn eða minningarmynd um veröld sem var og áróðursmynd fyrir betri framtíð | Garðar Þór Þorkelsson |
Lesbos | Lúðvík Páll Lúðvíksson |
Ég fer bráðum að koma | Örvar Hafþórsson |
Vopnafjörður | Karna Sigurðardottir |
Jói | Halla B. Randversdóttir og Bergþóra Snæbjörnsdóttir |
Rósa | María Worms |
Jörð og himinn | Rúnar Reynisson |
A Portrait of Reykjavik | Juan Albarran |
Siggi’s Gallery | Mahesh Raghavan |
Bonjour Mammon | Elfar Þór |
Raise the Bar | Guðjón Ragnarsson |
Verk í vinnslu |
|
Ýtt úr vör – verk í vinnslu frá 1983 | Júlía Björnsdóttir & Víðir Björnsson |
Kanarí | Magnea Björk Valdimarsdóttir/Marta Sigríður Pétursdóttir |
Amma Dreki | Harpa Fönn Sigurjónsdóttir |
Aftur heim ? | Dögg Mósesdóttir |
Johnny King | Árni Sveinsson og Andri Freyr Viðarsson |
Pjötlurnar | Janus Bragi Jakobsson og Loji Höskuldsson |
Lambaljósmóðirin | Bjargey Ólafsdóttir |
Vasulka Experience | Hrafnhildur Gunnarsdóttir |
Kanema´s Song (Söngur ömmu Kanemu) | Anna Þóra Steinþórsdóttir |
Ekki einleikið | Ásthildur Kjartansdóttir |