Snjór og Salóme eftir Sigurð Anton Friðþjófsson opnar í 15. sæti aðsóknarlistans. Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar hefur nú fengið 21.243 gesti eftir þrettándu sýningarhelgi.
163 sáu Snjó og Salóme opnunarhelgina en alls hafa 762 séð myndina með forsýningu.
30 gestir sáu Hjartastein í vikunni. Heildartala gesta er nú 21,243.
Aðsókn á íslenskar myndir 3.-9. apríl 2017
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
Ný | Snjór og Salóme | 762 | 762 | - |
13 | Hjartasteinn | 30 | 21,243 | 21,213 |