Hér er plakat kvikmyndarinnar „Ég man þig“

Plakat kvikmyndarinnar Ég man þig eftir Óskar Þór Axelsson hefur verið afhjúpað. Myndin verður frumsýnd 5. maí.

Ég man þig er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur. Óskar Þór Axelsson leikstýrir og í aðalhlutverkum Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Sara Dögg Ásgeirsdóttir. Framleiðendur eru Sigurjón Sighvatsson, Skúli Malmquist, Þórir Snær Sigurjónsson og Chris Briggs fyrir hönd Zik Zak Kvikmynda.

Söguþræði er svo lýst:

Kona um sjötugt hengir sig í afskekktri kirkju á Vestfjörðum eftir að hafa unnið skemmdarverk á kirkjunni. Nýlega aðfluttur geðlæknir á Ísafirði, Freyr, aðstoðar lögreglu við rannsókn málsins en fljótlega kemur í ljós að nokkrir skólafélagar konunnar úr æsku hafa einnig látist undanfarin ár, öll annað hvort í dularfullum slysum eða fyrir eigin hendi. Frey bregður illa þegar í ljós kemur að sum hinna látnu höfðu haft óeðlilega mikinn áhuga á hvarfi sjö ára sonar hans sem gufaði upp þremur árum fyrr og hefur aldrei fundist.

Handan Ísafjarðardjúps á Hesteyri eru þrjú borgarbörn komin til að gera upp gamalt hús. Skömmu eftir komu þeirra verða þau þess áskynja að þau eru ekki ein á svæðinu. Sögurnar tvær tengjast smám saman þegar á líður, ekki síst í gegnum sextíu ára gamalt mannshvarfsmál 10 ára drengs.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR