Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar vann til tveggja verðlauna á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Belgrad í Serbíu, sem lauk í gær. Myndin hlaut bæði dómnefndarverðlaun hátíðarinnar og verðlaun fyrir bestu fyrstu mynd leikstjóra.
Hjartasteinn hefur nú unnið til 24 alþjóðlegra verðlauna frá heimsfrumsýningu myndinnar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september 2016. Myndin hlaut þrettán verðlaun á síðasta ári og hefur hlotið 11 verðlaun á fyrstu mánuðum ársins 2017.
Myndin hlaut á dögunum níu Edduverðlaun.