Guðný Rós Þórhallsdóttir sigraði Sprettfiskinn, stuttmyndasamkeppni Stockfish, með stuttmynd sinni C-vítamín. Hlaut hún í verðlaun einnar milljón króna tækjaúttekt hjá Kukl.
Í dómnefnd Sprettfisksins sátu Baldvin Z, Rakel Garðarsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.