Aðsókn á Hjartastein Guðmundar Arnars Guðmundssonar heldur áfram að vera góð en myndin hefur nú fengið tæpa þrettán þúsund gesti eftir þriðju sýningarhelgi.
1,454 gestir sáu myndina um helgina, en alls 3,419 í vikunni. Heildartala gesta er nú 12,878. Myndin er áfram í öðru sæti á lista FRÍSK.
Eiðurinn er nú á 21. sýningarviku, en alls hafa 47,470 gestir séð myndina.
Aðsókn á íslenskar myndir 23.-29. janúar 2017
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
3 | Hjartasteinn | 3,419 | 12,878 | 9,459 |
21 | Eiðurinn | 35 | 47,470 | 47,435 |