Þórir Snær Sigurjónsson og félagar hans hjá danska framleiðslufyrirtækinu Profile Pictures framleiða kvikmyndina Underverden (Undirheimar) í leikstjórn Fenar Ahmad sem er á toppi danska aðsóknarlistans eftir frumsýningarhelgina. Yfir fjörtíu þúsund manns sáu myndina um helgina.
Þórir Snær fagnar einnig dreifingarmegin en Scanbox Entertainment, sem hann stýrir, sér um dreifingu myndarinnar. Þórir Snær, sem dvalið hefur í Danmörku í rúm tólf ár, hefur ekki áður átt danska mynd á toppi vinsældalistans, en hann hefur framleitt á fimmta tug kvikmynda, bæði á Íslandi og víða erlendis.
Sjá nánar hér: Underworld with great opening weekend