Samkvæmt áhorfsmælingum Gallup var meðaláhorf á fyrsta þátt Fanga, sem sýndur var þann 1. janúar, 48,7%. Hærra meðaláhorf var á annan þátt en hliðrað áhorf liggur ekki fyrir.
Fyrsti þátturinn var með 40,5% meðaláhorf og 8,2% hliðrað áhorf, alls 48,7%. Alls eru þetta um 127 þúsund manns. 84,1% þeirra sem horfðu á sjónvarp þá stundina horfðu á Fanga.
Annar þátturinn var með hærra meðaláhorf en sá fyrsti, eða 44,1%, sem gera tæplega 107 þúsund manns. Tölur um hliðrað áhorf á annan þátt liggja ekki fyrir enn, en verða birtar síðar.
Tölur Gallup má skoða hér.