Hjartasteinn Guðmundar Arnars Guðmundssonar hlaut áhorfendaverðlaun Politiken á CPH:PIX kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn sem lýkur á miðvikudag.
12 alþjóðlegar kvikmyndir kepptu um áhorfendaverðlaun CPH:PIX. Danski fjölmiðillinn Politiken er bakhjarl verðlaunanna og veitir nú Hjartasteini dreifingarstyrk og kynningu í Danmörku. Í fyrra vann Fúsi Dags Kára til sömu verðlauna á CPH:PIX hátíðinni.
Hjartasteinn hefur nú hlotið alls 10 alþjóðleg verðlaun.