Eiðurinn Baltasars Kormáks er nú í fimmta sæti aðsóknarlistans og komin með tæplega 37 þúsund gesti eftir sjöttu sýningarhelgi.
932 manns sáu myndina um helgina en alls 2,217 manns yfir vikuna. Samtals hafa því 36,780 séð Eiðinn síðan hún var frumsýnd þann 9. september s.l.
Aðsókn á íslenskar myndir 10.-16. október 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
6 | Eiðurinn | 2,217 | 36,780 |