Stuttmyndin Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur var valin besta dramatíska stuttmyndin á El Dorado Film Festival sem lauk í Arkansas í Bandaríkjunum í gær.
Þetta eru sjöundu alþjóðlegu verðlaunin sem myndin hlýtur en hún var jafnframt valin stuttmynd ársins á síðustu Edduverðlaunum, sem og valin besta íslenska stuttmyndin á síðustu RIFF hátíð.