Stuttmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar, Ártún, vann til tveggja verðlauna á jafn mörgum hátíðum á dögunum. Myndin vann dómnefndarverðlaun ungmenna á Sardinia Film Festival á Ítalíu og Vogelsong Family Foundation verðlaunin hjá International Festival of Local Televisions (IFoLT) í Slóvakíu.
Ártún var frumsýnd 2014 og hefur nú unnið til 10 alþjóðlegra verðlauna að þessum meðtöldum.