Fyrir framan annað fólk eftir Óskar Jónasson nýtur góðs gengis í kvikmyndahúsum og hefur nú fengið alls 4.907 gesti eftir aðra sýningarhelgi.
Þá er Hrútar Gríms Hákonarsonar komin með alls 22.052 gesti eftir 41 sýningarhelgi og heimildamynd Helga Felixsonar, Njósnir, lygar og fjölskyldubönd hefur fengið alls 1.151 gest eftir sex vikur í sýningum.
Aðsókn á íslenskar myndir 29. febrúar til 6. mars 2016
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
2 | Fyrir framan annað fólk | 2,412 | 4,907 |