Rúnar Ingi Einarsson leikstjóri stýrði gerð nýrrar kynningarkitlu fyrir sjöttu umferð þáttaraðarinnar Game of Thrones.
Rúnar Ingi, sem hefur meðal annars starfað fyrir Pegasus hér á landi við gerð auglýsinga auk þess að sinna verkefnum erlendis, segir á Facebook síðu sinni:
Fyrir tæpu hálfu ári var mér boðið af HBO að fljúga til Belfast til að leikstýra nýjasta teaser Game of Thrones. Tökur fóru fram í settinu þeirra og var ég umkringdur fagfólki sem unnið hafði við þáttinn undanfarin ár. Það gefur að skilja að þetta var tækifæri sem ég gat ómögulega staðist. Í gærkvöldi var svo teaserinn sýndur á besta tíma á HBO og er hann nú þegar kominn með yfir milljón áhorf á Youtube. Hér gefur að líta afraksturinn.