Hrútar Gríms Hákonarsonar hlaut áhorfendaverðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Tromsø í Noregi sem lauk um helgina.
Sturla Brandth Grovlen tökumaður myndarinnar og Theodór Júlíusson, annar aðalleikara, voru viðstaddir hátíðina. Þetta eru 24. verðlaun myndarinnar á alþjóðlegum vettvangi.