
Stuttmyndir Guðmundar Arnar Guðmundssonar, Ártún og Hvalfjörður, fengu nokkur verðlaun til viðbótar undir lok ársins og Hrútar Gríms Hákonarsonar pikkaði upp ein í viðbót.
Ártún var valin besta stuttmyndin fyrir ungt fólk á Ale Kino! hátíðinni í Pollandi sem lauk 6. desember. Hvalfjörður vann besta leikstjórann á Festival Internacional de Cine de Cartagena á Spáni (lauk 5. desember) og ennfremur aðalverðlaun dómnefndar (Grand Jury Prize) á 24fps International Short Film Festival sem fram fór í Texas í Bandaríkjunum í nóvember.
Alls er Ártún því komin með 5 verðlaun og Hvalfjörður 28.
Hrútar fengu aðalverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Alsír sem lauk 19. desember s.l. Myndin hefur því hlotið 22 alþjóðleg verðlaun á árinu.
Alls hafa íslenskar kvikmyndir þá unnið til 91 verðlauna á árinu, en þau voru 34 í fyrra. Nánar verður gerð grein fyrir þessu í sérstakri yfirlitsgrein á fyrstu dögum nýs árs.
(Uppfært 31. des.: Klausunni um verðlaun Hrúta bætt við eftir að þau tíðindi bárust Klapptré kvöldið áður).