Nýja Stjörnustríðsmyndin slær öll met á Íslandi

star wars the force awakensStar Wars: The Force Awakens var frumsýnd víða um heim í gær og hefur fengið vægast sagt glimrandi aðsókn. Aðsóknarmet hafa fallið víða en hvergi þó eins og á Íslandi þar sem 10,319 manns sáu myndina í gær, fimmtudag. Það er um 50% fleiri en sáu The Hobbit: The Battle of the Five Armies á fyrsta sýningardegi. Líklegt verður að teljast að myndin slái opnunarhelgarmet sömu myndar, sem er 28,919 gestir.

Myndin  er sýnd á 25 tjöldum þessa helgina. Spyrja má hvort hún nái að skjóta Everest Baltasars úr toppsætinu yfir aðsóknarhæstu myndir ársins, en til þess hefur hún aðeins 11 daga. Everest stendur í 67,414 gestum eftir síðustu helgi.

Sjá hér: Star Wars Iceland box-office smash – Iceland Monitor

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR