Pallborðsumræður um kvikmyndahátíðir sem fram fóru 1. október í Norræna húsinu á vegum RIFF má skoða í heild sinni hér.
Umræðurnar voru með þátttöku þungaviktarfólks af þeim vettvangi; Arnaud Gourmelen, dagskrárstjóra Director’s Fortnight á Cannes, Fredrick Boyer, stjórnanda Tribeca kvikmyndahátíðarinnar, Piers Handling stjórnandaToronto kvikmyndahátíðarinnar og Giorgio Gosetti, stjórnanda Venice Days á Feneyjarhátíðinni og dagskrárstjóra RIFF. Helga Stephenson, fyrrum stjórnandi kvikmyndahátíðarinnar í Toronto stjórnaði umræðum.