Aðsókn á Hrúta Gríms Hákonarsonar er áfram á fínu róli eftir sjöundu sýningarhelgi. Myndin er í sjöunda sæti aðsóknarlistans en 454 sáu myndina um helgina og alls 1.005 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 16.327 manns.
Albatross Snævars Sölvasonar er nú í tólfta sæti eftir fjórðu sýningarhelgi. Myndin fékk 53 gesti um helgina en alls 210 í vikunni. Heildaraðsókn er komin í 4.250 gesti.
Fúsi Dags Kára er komin í 11.746 manns í heildaraðsókn og situr nú í 13. sæti eftir 16 sýningarhelgar. 67 sáu hana um helgina en aðsókn í vikunni nam 100 gestum.
Bakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, er í fimmtánda sæti eftir tíundu sýningarhelgi, en 53 sáu hana í vikunni sem leið. Helgaraðsóknin nam 11 manns en heildaraðsókn er komin í 7.499 manns.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 6.-12. júlí 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
7 | Hrútar | 1.005 | 16.327 |
4 | Albatross | 210 | 4.250 |
16 | Fúsi | 100 | 11.746 |
10 | Bakk | 53 | 7.499 |