Sýningar á Vonarstræti Baldvins Z hefjast í Svíþjóð á morgun. Njuta Films dreifir myndinni sem þegar hefur fengið góðar móttökur gagnrýnenda.
Goran Everdahl hjá Gomorron Sverige, morgunþætti SVT, gefur myndinni fjórar stjörnur og segir m.a.:
„Afar dramatísk mynd sem meðal annars minnir á The Wolf of Wall Street. Kemur virkilega á óvart. Fær bestu meðmæli.„
Ronny Svensson hjá TV4 segir m.a.:
„Sterk og dökk, hrærir upp í manni. Þú verður að sjá þessa.“
Og í Amelia, einu stærsta kvennatímariti Svíþjóðar segir:
”Hera Hilmarsdóttir er stórkostleg… bara tímaspursmál hvenær hún dúkkar upp í Hollywood.“
Sjá nánar hér: Njutafilms » Life in a Fishbowl (Bio)