París norðursins, kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar sem frumsýnd var í fyrra, er nú til sýnis í 11 kvikmyndahúsum í Danmörku. Hér eru brot úr umsögnum nokkurra danskra fjölmiðla um myndina.
Bo Hansen hjá hinu kunna kvikmyndatímariti Ekko segir meðal annars í umsögn um myndina:
„Leikstjóranum Hafsteini Gunnari Sigurðssyni, tekst að komast nálægt aðalpersónu sinni. Við erum með Huga og göngum í gegnum hans reynslu. En stundum sýnir myndavélin okkur persónurnar að ofan, úr íronískri fjarlægð.
Og þannig sé ég myndina: eina stundina erum við inní þjáðum huga aðalpersónunnar en aðra stöndum við á fjallinu Þorfinni og lítum niður á þetta geggjaða fólk sem hleypur um og þræðir sig inn og út úr lífi hvers annars.“
Louise Kidde Sauntved hjá Berlingske Tidende segir:
„París norðursins er hljóðlát kómedía með þurrum húmor og meira hugleiðing en fjör.’
Henrik Queitsch hjá Ekstra bladet segir:
„Myndin sýnir vel samspilið milli hinna einangruðu húsa og stórbrotins landslagsins og hin hæga frásögn af aðalpersónunum er nokkuð hrífandi.“
Per Juul Carlsen hjá Filmland, kvikmyndaþætti DR, segir:
„Það hefði verið gott að hrista svolítið upp í Huga (aðalpersónunni). Meira frumkvæði frá persónum hefði getað sett meiri kraft í frásögnina sem fljótlega hættir að varpa fram nýjum hugmyndum.“
Søren Vinterberg hjá Politiken segir:
„Fjallið sem gnæfir yfir öllu heitir Þorfinnur og það talar jafn skýrt til manns og hinar fámæltu aðalpersónur í þessu afar hægláta drama.“