Hrútar er áfram á góðri siglingu í miðasölunni og nálgast nú ellefu þúsund gesti eftir þriðju sýningarhelgi.
842 sáu myndina um helgina en alls 3.602 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 10.914 manns. Myndin er áfram í þriðja sæti aðsóknarlistans.
Bakk, kvikmynd Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, fellur um eitt sæti í það níunda eftir sjöttu sýningarhelgi, en 424 sáu hana í vikunni sem leið. Helgaraðsóknin nam 50 manns en heildaraðsókn er komin í 7.123 manns.
Fúsi Dags Kára er komin í 11.406 manns í heildaraðsókn. Hún situr áfram í 11. sæti eftir 12 sýningarhelgar. 44 sáu hana um helgina en alls 215 í vikunni.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 8.-14. júní 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
3 | Hrútar | 3.602 | 10.914 |
6 | Bakk | 424 | 7.123 |
12 | Fúsi | 215 | 11.406 |