Fúsi Dags Kára heldur öðru sætinu á aðsóknarlista FRÍSK eftir nýliðna sýningarhelgi en heildaraðsókn er komin yfir níuþúsund manns.
601 sáu myndina um helgina, en alls 1.187 í vikunni. Heildaraðsókn stendur nú í 9.054 manns eftir sex sýningarhelgar.
Austur Jóns Atla Jónassonar fékk fáa gesti um helgina og er í 20. sæti aðsóknarlistans. Heildaraðsókn nemur nú 1.319 gestum eftir þriðju sýningarhelgi.
Blóðberg kemst ekki á lista en bæði hún og Austur er nú komnar í sýningar í Bíó Paradís.
Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 27. apríl til 3. maí 2015:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
6 | Fúsi | 1.187 | 9.054 |
3 | Austur | 65 | 1.319 |