Vonarstræti Baldvins Z var valin besta myndin á Febiofest kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Prag í Tékklandi 19. – 27. mars. Myndin tók þátt í aðalkeppni hátíðarinnar er nefnist „New Europe“ og varð þar hlutskörpust gegn 11 öðrum kvikmyndum. Baldvin var sérstaklega boðið af aðstandendum á hátíðina og veitti verðlaununum viðtöku.
Þetta eru fjórðu alþjóðlegu verðlaunin sem Vonarstræti hlýtur síðan hún var frumsýnd á erlendri grundu á hinni virtu Toronto kvikmyndahátíð í september síðastliðnum. Vonarstræti
Þar að auki hlaut Vonarstræti metfjölda Edduverðlauna á Edduverðlaunahátíðinni sem fór fram í febrúar síðastliðnum. Edduverðlaunin sem myndin hlaut voru 12 talsins, þar á meðal fyrir bestu mynd, besta leikstjóra, besta handrit, besta leikara í aðalhlutverki og bestu leikkonu í aðalhlutverki.