Greining | Velta bransans 15,5 milljarðar króna 2014, aldrei hærri

velta-bransinn-2014
Velta í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis nam alls tæplega 15,5 milljörðum króna á árinu 2014 og er það um 28% aukning frá árinu 2013.

Þetta er í samræmi við þær fréttir sem Klapptré flutti á seinni hluta síðasta árs. Af súlritinu hér að ofan má sjá að velta bransans hefur meira en þrefaldast á síðustu sex árum. Ástæðan er ekki síst mjög aukið umfang erlendra kvikmyndaverkefna sem hingað koma.

Þessar tölur koma frá SÍK sem aftur byggir á gögnum Hagstofu Íslands.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR