Hálendið, eftir handriti og í leikstjórn Ragnars Bragasonar, er meðal sjö verkefna sem valin hafa verið á Nordic Genre Boost, sérstakt átaksverkefni Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.
Stuðningurinn er í formi vinnubúða sem og þróunarfjár uppá 24.000 evrur eða rúmlega þrjár og hálfa milljón króna.
Byggt er á samnefndri skáldsögu Steinars Braga frá 2011. Skúli Malmquist og Þórir Snær Sigurjónsson hjá Zik Zak kvikmyndum framleiða.
Sjá nánar hér: Seven projects selected for the NFTVF’s Nordic Genre Boost – Cineuropa.