spot_img

“Vonarstræti” og “París norðursins” með 12 tilnefningar til Edduverðlauna

Edda 2015 logo

Vonarstræti og París norðursins hljóta báðar 12 tilnefningar til Edduverðlaunanna 2015. Sjónvarpsserían Hraunið fær fjórar tilnefningar. Tilnefningar voru kynntar í dag.

28 manns í fjórum valnefndum (valnefnd um leikið efni, sjónvarpsefni, heimildamyndir og fagverðlaunanefnd) sáu um að velja tilnefningar úr innsendum verkum en alls voru 108 verk send inn í Edduna í ár.

Rafræn kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka hefst 5. febrúar og stendur í tæpar tvær vikur, eða til 16. febrúar.

Edduverðlaunahátíðin fer fram í Silfurbergi í Hörpu, laugardaginn 21. febrúar og er sjónvarpað beint og í opinni dagskrá á Stöð 2. Þar verða veittar alls 25 Eddustyttur til þeirra einstaklinga sem þykja skara fram úr í íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransanum.

Eftirtalin verk og einstaklingar eru tilnefnd:

Barna- og unglingaefni

Stattu með þér! – Elinóra
Stundin okkar – RÚV
Ævar vísindamaður – RÚV

Brellur

Bjarki Guðjónsson – Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst
Jón Már Gunnarsson – Hraunið
Nicolas Heluani – Orðbragð

Búningar

Brynhildur Þórðardóttir – Borgríki 2: Blóð hraustra manna
Margrét Einarsdóttir – Vonarstræti
Margrét Einarsdóttir og Eva Vala Guðjónsdóttir – París norðursins

Frétta- eða viðtalsþáttur

Brautryðjendur – RÚV
Brestir – Stöð 2
Kastljós – RÚV
Landinn – RÚV
Málið – Majestic Productions

Gervi

Helga Sjöfn Kjartansdóttir – Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst
Kristín Júlla Kristjánsdóttir – Vonarstræti
Ragna Fossberg – Áramótaskaup 2014

Handrit

Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson – Vonarstræti
Bragi Valdimar Skúlason, Brynja Þorgeirsdóttir og Konráð Pálmason – Orðbragð
Huldar Breiðfjörð – París norðursins

Heimildamynd

Höggið: Lengsta nóttin – Elf films
Ó borg mín borg Chicago – Þetta líf. Þetta líf
Salóme – Skarkali

Hljóð

Gunnar Árnason – Borgríki 2: Blóð hraustra manna
Huldar Freyr Arnarsson – París norðursins
Huldar Freyr Arnarsson – Vonarstræti

Klipping

Kristján Loðmfjörð – París norðursins
Sigurbjörg Jónsdóttir – Vonarstræti
Valdís Óskarsdóttir og Sigurður Eyþórsson – Hemma

Kvikmynd

Borgríki 2: Blóð hraustra manna – Poppoli
París norðursins – Kjartansson og Zik Zak
Vonarstræti – Kvikmyndafélag Íslands

Kvikmyndataka

Bjarni Felix Bjarnason og Gunnar Heiðar – Borgríki 2: Blóð hraustra manna
Magni Ágústsson – París norðursins
Jóhann Máni Jóhannsson – Vonarstræti

Leikari í aðalhlutverki

Björn Thors – París norðursins
Sigurður Sigurjónsson – Afinn
Þorsteinn Bachmann – Vonarstræti

Leikari í aukahlutverki

Helgi Björnsson–  París norðursins
Jón Páll Eyjólfsson – Hraunið
Magnús Jónsson – Grafir & bein

Leikið sjónvarpsefni

Hraunið – Pegasus
Hreinn Skjöldur – Hláturskast og Bentlehem
Stelpurnar – Sagafilm

Leikkona í aðalhlutverki

Hera Hilmarsdóttir – Vonarstræti
Nína Dögg Filippusdóttir – Grafir & bein
Ólafía Hrönn Jónsdóttir – Ó, blessuð vertu sumarsól

Leikkona í aukahlutverki

Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Stelpurnar
Nanna Kristín Magnúsdóttir – París norðursins
Sólveig Arnarsdóttir – Hraunið

Leikmynd

Gunnar Pálsson – Vonarstræti
Hálfdán Lárus Pedersen – París norðursins
Linda Stefánsdóttir – Ártún

Leikstjórn

Baldvin Z – Vonarstræti
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson – París norðursins
Maximilian Hult – Hemma

Lífsstílsþáttur

Biggest loser – Sagafilm
Gulli byggir – Stöð 2
Hið blómlega bú – Búdrýgindi
Hæpið – RÚV
Nautnir norðursins – Sagafilm

Menningarþáttur

Djöflaeyjan – RÚV
Inndjúpið – RÚV
Með okkar augum – Sagafilm
Útúrdúr – RÚV
Vesturfarar – RÚV

Sjónvarpsmaður

Bogi Ágústsson
Brynja Þorgeirsdóttir
Hilda Jana Gísladóttir
Logi Bergmann
Unnsteinn Manúel Stefánsson

Skemmtiþáttur

Andri á Færeyjaflandri – Stórveldið
Hraðfréttir – RÚV
Ísland got talent – RVK Studios og Stöð 2
Logi – Stöð 2
Orðbragð – RÚV

Stuttmynd

Hjónabandssæla – Dórundur og Sagafilm
Sjö bátar – Masterplan Pictures og Join Motion Pictures
Sub Rosa – Sub Rosa productions og Klikk productions

Tónlist

Barði Jóhannsson – De Toutes Nos Forces (e. The Finishers)
Ólafur Arnalds – Vonarstræti
Svavar Pétur Eysteinsson – París norðursins

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR