Stuttmynd Nönnu Kristínar Magnúsdóttur, Tvíliðaleikur (Playing With Balls) verður sýnd á Gautaborgarhátíðinni sem fram fer 23. janúar til 2. febrúar. Myndin hefur áður verið sýnd á Toronto hátíðinni og RIFF síðastliðið haust.
Vonarstræti tekur einnig þátt í hátíðinni og þegar hefur verið sagt frá þátttöku París norðursins í aðalkeppninni.
Sjá nánar hér: Göteborg International Film Festival: Playing with Balls.