Fjórtán íslenskar kvikmyndir hlutu alls 34 alþjóðleg verðlaun á kvikmyndahátíðum víða um heim 2014 (33 verðlaun 2013). Hæst bera Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs til handa Hross í oss og Nordisk Panorama verðlaunin til heimildamyndarinnar Salóme. Báðar myndirnar eru verðlaunum hlaðnar, Salóme hlaut alls þrenn verðlaun á árinu en Hross í oss níu (auk þess hlaut Salóme áhorfendaverðlaun á Skjaldborgarhátíðinni og Hrossin fengu sex Eddur).
Þá ber einnig að geta þess að Ólafur Arnalds hlaut BAFTA-verðlaunin fyrir tónlist sína við sjónvarpsþættina Broadchurch. Annar Íslendingur, kvikmyndatökumaðurinn G. Magni Ágústsson, kom einnig að BAFTA verðlaunuðu verkefni á árinu, stuttmyndinni Room 8.
Verðlaun til íslenskra kvikmynda á árinu (miðað er við alþjóðlegar hátíðir, óháð staðsetningu)
BÍÓ:
Hross í oss: Alls hlaut myndin níu verðlaun á árinu auk sex Edduverðlauna. Áður hafði hún hlotið tíu verðlaun 2013. Verðlaun 2014 voru: Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs, besti leikstjórinn á Eurasia International Film Festival í Khazakstan, aðalverðlaun Brussels Film Festival, áhorfendaverðlaun CPH PIX í Kaupmannahöfn, besta tónlist og besta mynd á kvikmyndahátíðinni í Aubagne í Frakklandi, áhorfendaverðlaun og verðlaun gagnrýnenda í Gautaborg og áhorfendaverðlaunin í Tromsö.
Málmhaus: Mynd Ragnars Bragasonar hlaut fimm verðlaun á Hells’ Half Mile Film and Music Festival í Michigan í Bandaríkjunum. Verðlaunin voru fyrir bestu myndina, bestu tónlistina, bestu leikkonuna (Þorbjörg Helga Dýrfjörð), besta aukaleikarann (Ingvar E. Sigurðsson) og loks áhorfendaverðlaun fyrir bestu erlendu mynd. Þá hlaut myndin ennfremur átta Edduverðlaun á árinu.
Vonarstræti: Besta frumraunin á Tallinn Black Nights og aðalverðlaun Norræna bíódaga í Lubeck. Auk þess var myndin framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2015 og var jafnframt í forvalshópi þeirra mynda sem til greina komu við veitingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.
Falskur fugl: Bíómynd Þórs Ómars Jónssonar hlaut aðalverðlaun Lighthouse Film Festival í New Jersey í Bandaríkjunum.
HEIMILDAMYNDIR:
Salóme: Mynd Yrsu Roca Fannberg hlaut auk áhorfendaverðlauna Skjaldborgarhátíðarinnar, aðalverðlaun Nordisk Panorama fyrir heimildamyndir fyrst íslenskra mynda, verðlaun á Szczecin European Film Festival í Póllandi og verðlaun á L’Alternativa kvikmyndahátíðinni í Barcelona á Spáni.
Holding Hands for 74 Years: Heimildamynd Sigríðar Þóru Ásgeirsdóttur um hjónin Lúðvík og Arnbjörgu og hvernig æskuást þeirra þroskaðist og dafnaði í 74 ár hlaut fyrstu verðlaun á Reykjavik Shorts & Docs Festival.
STUTTMYNDIR:
Hvalfjörður: Þessi margverðlaunaða stuttmynd Guðmundar Arnar Guðmundssonar (sem hlaut 12 verðlaun 2013) hlaut alls fern alþjóðleg verðlaun 2014, auk þess að vera valin stuttmynd ársins á Edduverðlaununum og hljóta tilnefningu til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Verðlaunin fjögur eru: sérstök viðurkenning á Minimalen hátíðinni í Þrándheimi, dómnefndarverðlaun á Riverrun hátíðinni í Bandaríkjunum, sérstök viðurkenning á Alcine Film Festival á Spáni og besta myndin á International Short & Independent Film Festival í Bangladesh.
Ártún: Mynd Guðmundar Arnar Guðmundssonar var valin besta stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni í Chigaco og hlaut einnig aðalverðlaun hinnar virtu Brest European Short Film Festival í Frakklandi.
Megaphone: Mynd Elsu Maríu Jakobsdóttur var valin besta íslenska stuttmyndin á Northern Wave Festival í Grundarfirði.
Málarinn: Stuttmynd Hlyns Pálmasonar var valin besta íslenska stuttmyndin á RIFF.
Sub Rosa: Stuttmynd Þóru Hilmarsdóttur hlaut sérstaka viðurkenningu dómnefndar á RIFF.
Hjónabandssæla: Stuttmynd Jörundar Ragnarssonar var valin besta stuttmynd á World Film Festival í Montreal.
Sker: Stuttmynd Eyþórs Jóvinssonar hlaut önnur verðlaun á Reykjavík Shorts & Docs Festival.
Leitin að Livingstone: Stuttmynd Veru Sölvadóttur hlaut þriðju verðlaun á Reykjavik Shorts & Docs Festival.