Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum er áfram í fimmta sæti aðsóknarlistans eftir sjöttu sýningarhelgi. Myndina sáu 796 manns í liðinni viku, þar af 429 um helgina. Myndin hefur fengið alls 31.846 gesti.
Afinn er nú í 14. sæti eftir elleftu sýningarhelgi. Alls hafa 14.894 séð myndina frá upphafi.
Sýningum á París norðursins, Borgríki 2 og Grafir og bein er lokið.
Ljóst er að 2014 verður næst aðsóknarhæsta ár í sögu íslenskra kvikmynda frá því formlegar mælingar hófust 1996.
AÐSÓKN VIKUNA 1.-7. des. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
5 | Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum | 796 | 31.846 |
9 | Afinn | 84 | 14.894 |