Anna Gunndís Guðmundsdóttir leikkona, sem nú stundar nám í kvikmyndagerð við New York University hyggst taka upp stuttmyndina I Can’t Be Seen Like This í byrjun næsta árs. Anna Gunndis leitar eftir stuðningi við verkefnið á Karolina Fund.
Myndin fjallar um tvær litlar systur sem ákveða að baka köku í tilefni afmælis pabba síns. Allt fer úr böndnum þegar hárið á þeirri yngri festist í hrærivélinni og helmingurinn tætist af. Eftir slysið er eitthvað brostið í sambandi þeirra systra sem þær þurfa að horfast í augu við.
Ólafur Darri Ólafsson og Einar Aðalsteinsson fara með hlutverk í myndinni en prufur eru fyrirhugaðar í desember fyrir litlu stelpurnar tvær sem eru á aldrinum 8-12.
Sjá nánar hér: I Can’t Be Seen Like This – Karolina Fund.