Hyggst kvikmynda hundrað manns að horfa á ENGLA ALHEIMSINS

Kvikmyndagerðamaðurinn og ljóðskáldið Guðmundur Magnússon hyggst kvikmynda hundrað þjóðþekkta einstaklinga við áhorf á kvikmyndinni Englar alheimsins í Bæjarbíói. Hægt er að styðja við verkefnið á Karolina Fund.

Söfnun fyrir verkefnið Vængjaþytur englanna er nú í gangi á Karolina Fund. Um er að ræða tilraunamynd, sem verður komandi kynslóðum fallegur menningararfur, segir í kynningu.

Þar segir ennfremur:

Markmiðið er að fanga upplifun, tilfinningar, gleði og sorg, alfarið í kvikmyndahúsi, sem því miður er deyjandi menning.

Hundrað þjóðþekktir Íslendingar verða áhorfendur á kvikmyndinni Englar alheimsins (2000) eftir Friðrik Þór Friðriksson, og verður sú upplifun tekin upp, þannig að hver og einn þátttakandi verður kvikmyndaður í nærmynd.

Sagan bak við hugmyndina

Guðmundur segir frá: „Fyrir nokkrum árum fékk ég þá hugmynd að gera listræna kvikmynd í anda Shirin eftir Abbas Kiarostami (1940-2016), frá árinu 2008, þar sem upplifun í kvikmyndahúsi var varðveitt með áhrifaríkum hætti á kvikmyndaformi. Kvikmyndin Shirin sýnir 114 þekktar leikkonur í Íran, ásamt leikkonunni frönsku Juliette Binoche, og saga af persnesku ljóði frá tólftu öld er sögð gegnum andlit þessara kvenna.

Englar alheimsins (2000) varð fyrir valinu en mér finnst það vera eina kvikmyndin sem kemur til greina fyrir þetta verkefni hér á Íslandi. Þetta er mynd sem allir þekkja, geta vitnað í og hún liggur djúpt í þjóðarsálinni. Hún er á köflum erfið áhorfs en á sama tíma eru þar margar fyndnustu senur íslenskrar kvikmyndasögu.“

Bæjarbíó

Tökurnar munu fara fram í Bæjarbíói og verður skipulag þannig að tveir áhorfendur/þátttakendur verða í tökum í einu.

Hver þátttakandi verður með statista með sér sem þó sést lítið í mynd en verður til staðar svo ekki verði einmanalegt og tómlegt umhorfs. Kvikmyndamenning snýst að sjálfsögðu um upplifun með öðru fólki.

Styrktaraðilar fá tækifæri til að taka þátt sem statistar og hitta þá um leið okkar þekktustu leikara af hvíta tjaldinu og úr listaheiminum.

Efnið verður svo klippt saman í heimildamynd sem er jafn löng í mínútum og Englar alheimsins. Og verður sýnd þannig – eins og allir 100 þátttakendur séu saman í bíó.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR