Fjórða Sveppamyndin, Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum, heldur áfram að moka inn áhorfendum. Alls komu 13.462 manns á myndina í liðinni viku, þar af 8.635 um helgina. Myndin hefur því fengið alls 22.897 gesti eftir aðra sýningarhelgi og situr aftur á toppi aðsóknarlistans. Interstellar, sem frumsýnd var um helgina, kemur nokkuð á eftir með 7.468 gesti.
Borgríki 2 Ólafs de Fleur fellur úr fimmta sæti aðsóknarlistans í það sjöunda eftir fjórðu sýningarhelgi. 421 sá myndina um helgina en alls 1.533 yfir vikuna. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 10.392 manns.
Grafir og bein fellur úr þriðja sæti í það níunda eftir aðra sýningarhelgi með alls 2.114 gesti í vikunni, þar af 364 um helgina. Samtals hafa 3.188 séð myndina frá upphafi.
Afinn er nú í tíunda sæti eftir sjöundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.405 séð myndina frá upphafi, þar af 649 síðastliðna viku.
AÐSÓKN VIKUNA 3.-9. nóv. 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
2 | Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum | 13.462 | 22.897 |
2 | Grafir og bein | 2.114 | 3.188 |
4 | Borgríki 2 | 1.533 | 10.392 |
7 | Afinn | 649 | 14.405 |