Plakat „Borgríkis 2“ afhjúpað

Poppoli, framleiðslufyrirtæki kvikmyndarinnar Borgríki 2, hefur kynnt plakat myndarinnar sem væntanleg er í kvikmyndahús þann 17. október næstkomandi.

Söguþræði lýsa aðstandendur svo:

Myndin fjallar um Hannes, metnaðarfullan lögreglumann, sem lendir á hálum ís þegar hann hefur rannsókn á yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar eftir ábendingu frá fyrrverandi glæpaforingja sem situr inni. Hannes sér fram á að slá tvær flugur í einu höggi, ná yfirmanninum en einnig erlendri glæpaklíku sem er með tökin á borginni. Til að ná þessu markmiði sínu dregur hann lögreglukonu með erfiða fortíð inn í aðgerðirnar, óafvitandi að erlenda glæpagengið ætlar sér stóra hluti og að meðlimir þess munu einskis svífast til að verja sig.

borgríki 2 plakat

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR