Evrópska kvikmyndaakademían hefur tilkynnt um þær 50 myndir sem keppa munu um tilnefningar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Tvær íslenskar myndir, Hross í oss og Vonarstræti, eru í hópnum.
Tilnefningar verða kynntar þann 8. nóvember næstkomandi á Evrópsku kvikmyndahátíðinni í Sevilla á Spáni. Sjálf verðlaunaafhendingin fer fram í Riga Lettlandi þann 13. desember.
Yfir 3.000 meðlimir Evrópsku kvikmyndaakademíunnar kjósa á næstunni um þær myndir sem tilnefningu hljóta.
Sjá heildarlista hér: European Film Awards – Selection 2014.