Vonarstræti heldur áfram að klifra upp fimmta tugþúsundið. Myndin er nú í 6. sæti aðsóknarlista SMÁÍS eftir 9 vikur í sýningum. Alls sáu myndina 1.377 manns s.l. viku, þar af 467 um helgina. Samtals hefur myndin fengið 42.328 gesti frá því sýningar hófust.
Hross í oss er einnig áfram í Bíó Paradís og er á 46. sýningarviku. Myndin er komin í alls 15.126 gesti.
AÐSÓKN VIKUNA 7.-13. JÚLÍ 2014:
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDARAÐSÓKN |
---|---|---|---|
9 | Vonarstræti | 1.377 | 42.328 |